|
Hundahreysti - fyrsta val hundsins |
|||||||||||||||||
Vafraðu umTenglar
|
FóðurgjafirHve mikið ferskfóður þarf hundurinn? Eftirfarandi tafla gildir fyrir Nordic Iceland. Þetta eru viðmiðunartölur (+/- 25%) fyrir heilbrigðan, fullorðinn hund sem fær meðal hreyfingu. Mælt er með að fullorðnir hundar fái mat 1-2 á dag en hvolpar 3-4 sinnum. Hundar eiga alltaf að hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni.
Orkuþörf eldri hunda* Vegna minnkandi hreyfingar og hægari efnaskipta þurfa eldri hundar u.þ.b. 20% færri kaloríur en yngri, fullorðnir hundar þurfa. Með hækkandi lífaldri hafa eldri hundar tilhneigingu til að þyngjast og verða of feitir. Það tekur feita hunda lengri tíma að jafna glúkósa í blóðinu og þessi truflun á meltingu kolvetna getur leitt til sykursýki. Orkuþörf tíka með hvolpa á spena* Nýbakaðar mæður eru venjulega með hvolpana sína á spena í a.m.k. 6 vikur. Þörf hennar fyrir auka kaloríur eykst með fjölda hvolpa og fjölda vikna sem þær mjólka þar til hvolparnir eru 4 vikna. Mjög stórar tegundir (t.d. stóri Dani) hafa hlutfallslega minni meltingarveg og geta tíkur af þeim tegundum ekki alltaf borðað nægilega mikið til að halda holdum á meðan þær eru með hvolpa á spena. Eigendur slíkra hunda gætu þurft að gefa hvolpunum annan mat en móðurmjólkina mjög snemma. Orkuþörf slasaðra hunda* Mikið slasaðir hundar eða hundar í sjokki gætu haft aukna orkuþörf. Ef hundurinn þinn er slasaður eða veikur skaltu spyrja dýralækni hvort ef til vill þurfi að breyta matarvenjum hans með tilliti til orku eða næringarefna. Heimild: Your dog´s nutritional needs: A Science-Based Guide For Pet Owners. National research council of the national academies USA 2006. Vítamín Fituleysanleg vítamín
Hvaðan?: A-vítamín fæst eingöngu í dýraríkinu og helst í lifur, egg, feitum fisk og mjólk. Vissir þú að? Betakaroten er efni sem líkami manna og hunda
getur notað sem bygginarefni til að búa til A-vítamín. Betakaroten gefur
gulrótum og rauðum fótum flamingófugla lit. Hvaðan? Í feitum fisk t.d. síld og lax, en einnig í smjör, rjóma, eggjarauðu og lifur. Vissir þú að? D-vítamín hefur verið til á jörðinni í 500
milljónir ára. E-vítamín Skortur: getur leitt til vandamál við frjóvgun, hrörnun
sjónhimnu og vöðvavanamála Hvaðan? Aðallega í olíum úr jurtaríkinu svo sem solblómaolíu, en er einnig til í
fitu úr dýraríkinu, ávöxtum, grænmeti og fræum. Vissir þú að? E-vítamín er notað sem þrávarnarefni í hundafóðri
til að hægja á því að fitan í fóðrinu þráni. Skortur: Ekki er vitað um að það geti komið upp skortur á
vítamíninu hjá eðlilegum hundum þar sem þeir geta myndað það sjálfir í
líkamanum Hvaðan? Fyrst og fremst mynda hundar það sjálfir í líkamanum. Vítamínið er þó til
víða, þó mest í þéttu og grænu grænmeti eins og broccolí og grænkál og í sýrðum
sojavörum, t.d. tofú. Vissir þú að? K-vítamín er einnig til í tóbaki. Ekki þó hvetja
hvuttana til að fá sér smók, því þótt þeir séu þó með forða af K-vítamíni þegar
þeir fá lugnakrabba er löngu sannað samband milli reykinga og beinþynnigar og
því er engum greiði gerður með því að gefa þeim vítamínið á þennan hátt. Vatnsleysanleg vítamín
Hvaðan? B1vítamín er til víða, mest í geri,
grísakjöti og belggrænmeti ein einnig í innmat, hnetum, mjólk, ávöxtum og
grænmeti Vissir þú að? Í hráum fisk er til ensími sem heitir
þíamínas sem skemmir B1 þannig ef hundur fær mikinn hráan fisk getur hann
fengið vítamínskort þótt hann fái í sig réttan skammt af þíamíni. Við upphitun
skemmist meirihlutinn af B1vítamín þannig að fóðurframleðeindur bæta í
margföldum skammti fyrir upphitun til að réttur skammtur standi eftir. Skortur: anorexía, þyngdartap, veikleika í
vöðva, vefjaskemmdir í augum Hvaðan? Fyrst og fremst í mjólk og
mjólkurvörum, en einnig í kjöti, eggjum og grænu grænmeti Vissir þú að? Hundar framleiða vítamínið að hluta
til í þörmunum en þarf einnig að fá það úr fóðrinu. Vítamínið er við kvæmt
fyrir ljósi en ekki hita. B3
vítamín (Níasín) Skortur: anorexía, þyngdartap, bólgur í vörum, kinnum og
hálsi, yfirdrifin framleiðsla á slefi, blóðugur niðurgangur Offóðrun: blóðugar hægðir og krampar Hvaðan? Lifur, magurt kjöt, fiskur, fugl og jarðhnetur Vissir þú að? Hundar geta betur nýtt sér níasín frá dýraríkinu
en jurtaríkinu og geta líka myndað hluta af vítamíninu með amínósýrunni
trypofan
Skortur: anorexía eða þyngdartap hjá hvolpum,
krampar, vöðvakippir og blóðskortur Offóðrun: minnkun í fínhreyfingum og jafnvægi,
þróttleysi í vöðvum Hvaðan? Ger, grísakjöt, lifur og annar innmatur, fullkorni,
belgbaunir, haframjöl, bananar, kartöflur og fræ. Vissir þú að? Það magn B6 sem hundurinn þarf
er í beinu hlutfalli við próteininntöku Skortur: óreglulegar matarinntöku hunda, skyndileg örmögnun eða dauðadá (coma),
hröð öndun og hjartsláttur, krampar, minnkun mótefnamyndunar Hvaðan? Er til nánast allstaðar en í mjög ríku magni í nýrum, lifur, geri,
ejggjarauðu, mjólk og broccoli. Vissir þú að? "Pan" í pantóþensýru er gríska orðið yfir "allt"
og kemur af því að það er til nánast allstaðar. Skortur á vítamíninu er því
næstum óþekkt. B12
vítamín (Kóbalamín) Skortur: skortur á matarlyst, fækkun hvítra blóðkorna,
blóðskortur, breytingar í beinmerg Hvaðan? Bara úr dýraríkinu. Sérstaklega í lifur, mjólk, eggjum og fisk og kjúkling. Vissir þú að? Vítamínið Kóbalamín inniheldur steinefnið Kóbolt.
Kóbalamín getur safnast fyrir í lifrinni, og er það eina vatnsleysanlega
vítamínið sem gerir það.
Skortur: þyngdartaps, minnkun í þéttleika hemóglóbíns Hvaðan? Lifur, nýru, grænt blaðagrænmeti, baunir, bananar Vissir þú að? Hundar geta myndað vítamínið í einhverjum mæli í
þörmunum. Við upphitun eyðileggst fólatið og það er því nokkuð vandmeðfarið.
Vítamínið er sérstaklega mikilvægt hvolpafullum tíkum.
Skortur: þyngdartap, feit lifur Hvaðan? Kólín er til í flestum hráefnum t.d.
eggjarauðu, kjöti, grænmeti, mjólkurvörum Vissir þú að? Hundar geta myndað kólín með
amínósýrunni serin. Ekki er vitað hvort hundar framleiða nóg af vítamíninu
þannig að því er bætt í fóður til öryggis. C-vítamín (askorbínsýra) Fyrir hvað? Til að mynda kollagen og því mikilvægt
fyrir beinin Skortur: hundar framleiða sjálfir C-vítamín í
lifrinni og því er afar sjaldan um skort að ræða og jafnvel aldrei. Offóðrun: mjög mikil offóðrun í langan tíma
gæti mögulega leitt til koparskorts Hvaðan? Gras,
grænmeti, hvítkál, appelsínur Vissir þú að? Sumir
ræktendur gefa C-vítamín til þess að koma í veg fyrir mjaðmalos en ekki hefur
verið hægt að sanna tengingu þar á milli í vísindalegum rannsóknum. Sumir
fóðurframleiðendur bæta framleiddu c-vítamíni í fóður og það er aðallega til að
breyta sýrustigi eða sem rotvarnarefni. Mannfólk er eitt af fáum spendýrum sem
geta ekki framleitt c-vítamín í lifrinni.
Heimildir: Lýðheilsustöð
www.lydheilsustod.is Sallander, M. o.fl. , Hundmatboken. Svenska Kennelklubben,
Sellin&Partner Bok & Idé AB, Kristianstad Sverige, 2001 Paulún, F., Sundin, A., Nya
vitamin- och mineralguiden. Fitnessförlaget, Köping Sverige, 2005 Steinefni Kalk * mótar beinin og tennurnar, virkar fyrir blóðstorknun, boðtaugakerfið, vöðvasamdrættir, * skortur getur leitt til, töluverð lækkkun í steinefnaforða beina getur leitt til meiriháttar afbrigðaleika í beinagrind * offóðrun getur leitt til mismunandi tegunda af skekkju í beinagrind, sérstaklega í vaxandi hvolpum stórra tegunda Fosfór * beinauppbygging, formgerð DNA og RNA, efnaskipti, hreyfigetu, sýrujafnvægi * skortur getur leitt til að dragi úr vexti, skortur á matarlyst, bognar og bólgnar framfætur hjá hvolpum Magnesíum * virkni ensíma, stöðugleika vöðva- og tauga himnu, hormónaflæði og -virkni, steinefnauppbygging í beinum og tönnum * skortur getur leitt til að dragi úr vexti, skapstyggð og krampa hjá hvolpum, öfgavöxtur í úlnliðum og seinna í lífinu lömum í afturfótum Natrín (sodium) * sýrujafnvægi, stjórnun á osmósuþrysting, stofnun og virkni taugaboða * skortur getur leitt til eirðarleysis, aukinn hjartsláttur, aukin vatnsneysla, þéttleika blóðrauða, Kalín (potassium) * sýrujafnvægi, taugaboðkerfi, viðbrögð ensíma, flutningsvirkni * skortur getur liett til að hvolpar þroskist ílla, lömun í hnakkavöðvum og afturfótum og almenn veikleiki hunda seinna í lífi hundsins Klór (Chlorine) * sýrujafnvægi, flutningur utanfrymisvökva milli frumuhinma * skortur getur leitt til að dragi úr vexti hvolpa auk almenns óheilbrigðis þeirra Járn * Myndun blóðs, melting * skortur getur leitt til að dragi úr vexti, ljósar slímkenndar himnur, sinnuleysis eða deyfðar, þróttleysis, niðurgangur * (offóðrun) at acute levels, dangerous oxidative reactions that lead to gastrointestinal and other rissue damage Kopar * mótun tengingu vefja, efnaskipta járns, myndun litarefnisins melaníns, myndun mýelíns * skortur getur leitt til skorts í litarefni í feld hjá hvolpum og blóðskorts Sínk * viðbrögð ensíma, fjölgun fruma, prótein- og kolvetnismeltingu, virkni húðar, að sár grói * skortur getur leitt til að dragi úr vexti, uppkasta, vefskemmdar í húð Mangan * virkni ensíma, uppbygging bein a, virkni taugakerfirs * engar upplýsingar um rannsóknir um skort á steinefninu Selen * viðbrögð ónæmiskerfis o.fl. * skortur getur leitt til anorexíu, þunglyndi, óþægindi við öndun, dauðadá, hrörnun vöðva Joð * myndun hormóna í skjaldkirtli, sérhæfing fruma, vöxtur og þroski hvolpa, stjórnun hraða efnaskipta |
||||||||||||||||