|
Hundahreysti - fyrsta val hundsins |
|
Vafraðu umTenglar
|
Um Nordic ferskfóðurNordic ferskfóður er algjör nýjung á íslenskum markaði. Þetta er ekki aðeins nýtt vörumerki heldur ný gerð af fóðri sem hefur ekki verið selt hér á landi áður. Fyrirmyndin er sænskt fóður sem kallast Nordic färskfoder og hefur verið selt í Svíþjóð til fjölda ára. Öll framleiðsla er þó íslensk. Fyrirtækið Hundahreysti ehf., sem er 100% í eigu Íslendinga, er með einkaleyfi á framleiðslu og sölu á þessu fóðri frá Nordic í Svíþjóð. Í fóðrið er notað hrátt íslenskt kindakjöt, nautavambir og nautablóð. Engar aukaafurðir af dýrum eru notaðar í fóðrið aðrar en nautavambir. Þar að auki er svo bætt í kartöflutrefjum, hveitiklíði, kalki, steinefnum og vítamínum. Kjötið í fóðrinu er alveg hrátt og þess vegna kallast það ferskfóður. Það selst frosið og geymist í u.þ.b. ár í frysti. Nordic ferskfóður er heilfóður fyrir hunda og ekki er þörf að gefa hundinum neina viðbót eða blanda við annað fóður. Meðal viðskiptavina Nordic eru dýralæknar sem mæla með fóðrinu fyrir hunda með ofnæmi eða viðkvæma maga, veiðimenn sem segja hundana sína hafa aukna orku og úthald, sýningarfólk sem vill sjá feld hundanna sinna glansa að ógleymdum óbreyttum hundaeigendum sem hafa tekið eftir því að hundarnir þeirra hafa meiri orku, matarlyst og líður almennt vel. |