Hundahreysti

- fyrsta val hundsins

Vafraðu um


Tenglar

Algengar spurningar


Er Nordic hundamatur heilfóður eða er betra að blanda honum við þurrmatinn?
Nordic hundamatur er viðurkennt heilfóður og inniheldur allt það sem hundar þurfa á að halda til að lifa heilbrigðu lífi. Fóðrið er fyrir hvolpa, fullorðna hunda, hvolpafullar tíkur og hunda í vinnu. Ekki þarf að gefa þeim annað með.

Hve mikil reynsla er af þessu fóðri erlendis?
Nordic hundafóður hefur verið framleitt frá 1980 í Svíþjóð.

Hve lengi geymist fóðrið?
Fóðrið geymist í eitt ár í frysti frá framleiðsludegi. Það geymist í 3-4 daga í ísskáp.

Hvernig er fóðrið þítt?
Fóðrið selst innpakkað í vacumpokum og má þíða fóðrið í plastinu þar sem notast er við sama plast og er viðurkennt fyrir matvæli til manneldis. Gott er að þíða fóðrið í vatnsbaði (í plastinu) eða jafnvel örbylgjuofni (ekki í plastinu) til að flýta fyrir.

Er ekki hættulegt að gefa hundum hrátt kjöt?
Sumir hafa haldið því fram að hundar geta orðið dýrbítar af því að fá hrátt kjöt en það er ekkert sem styður þá kenningu í raunveruleikanum.

Fóðrið dekkist strax á fyrsta sólarhring, er það þá ónýtt?
Nei, það er í fínu lagi með fóðrið og geymist vel í tvo daga til viðbótar. Þetta gerist þegar súrefni kemst í tæri við kjötið og er alveg skaðlaust. Við gætum komið í veg fyrir þetta með aukaefnum (litarefnum, bindiefnum eða rotvarnarefnum) en við viljum engin aukaefni í okkar fóður.

Er bara hægt að versla fóðrið á höfuðborgarsvæðinu?
Eins og stendur er heimsendingarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi ásamt versluninni Hundaheim í Mosfellsbæ. Næst bætist Selfoss við og fleiri bæjarfélög smátt og smátt. Ef þú býrð utan okkar sölusvæðis ertu velkomin/n að hafa samband og þá finnum við lausn á dreifingu.

Hvernig er best að geyma fóðrið?
Fóðrið geymist í u.þ.b. ár í frysti frá framleiðsludegi en 3-4 daga í ísskáp. Gott er að geyma þiðnað fóður í lokuðum plastdalli í ísskápnum t.d. gömlu ísboxi.

Er hægt að nálgast prufu af Nordic ferskfóðri?

Já, verslunin Hundaheimar í Mosfellsbæ (við hliðina á Krónunni) selur staka 0,5kg poka.

Þarf ekki að gefa hundum hrá bein með Nordic ferskfóðri?

Allir hundar þurfa bein til að naga .En þar sem Nordic ferskfóður er kalkbætt þurfa hundarnir ekkert endilega hrá bein til að bryðja heldur bara bein til að uppfylla nagþörfina og hreinsa tennurnar.